Slagveđur
Ég held ég sé bara lögst í dvala, mun ekki koma út fyrr en það hættir að vera rigning og rok!

Jæja, þá er ég mætt til vinnu á Ísól á ný. Ein ritaraskvísan er að fara að skella sér í barneignarfrí og ég ákvað að koma öllum til bjargar og taka þetta bara að mér. Er hvort sem er ekki að fara að klára í vor, of margir vorkúrsar eftir til að það sé hægt. Skólinn fer þó ekkert á hold, kúrsum verður bara aðeins fækkað á næstu önn. Núna er ennþá allt á fullu, 5 vikur í próf og skýrslu-og verkefnaskil í fullum gangi. Svo eru fjáraflanir fyrir útskriftarferðina byrjaðar, meðal annars einkakennsla fyrir framhaldsskólanema. Auðvitað tók ég það LÍKA að mér, sé bara fram á að ég verði á haus fram til 21.des. Þá eru próflok og mun eflaust margt róast þegar kemur að þeim.
Reyndar er ég bara varla að trúa að BS-námið hérna heima sé svona eiginlega að verða búið. Þó ég verði fram til vorsins 2008 þá er aðalskemmtunin búin næsta vor. Þá útskrifast sumir og ég býst við að ég vinni bara alveg með náminu, enda ekki það mikið eftir að ég muni hafa nóg að gera bara í skólanum. Ég er alls ekki sammála fólki sem segir að menntaskólaárin séu þau bestu; mér þykja árin í háskólanum mun skemmtilegri. :)
Vinnan kallar..